15.05.23

Deiglu- og tengslafundir í apríl

Tengslafundur hjá Festi


Eignarhaldsfélagið Festi, sem rekur Krónuna, Elko, N1 og Bakkann vöruhús bauð aðildarfélögum Festu á skemmtilegan og fróðlegan tengslafund í í apríl.


Ásta Sigríður Fjeldsted forstjóri, Kolbeinn Finnsson framkvæmdastjóri rekastrarsviðs og Ásdís Björg Jónsdóttir forstöðumaður samfélags- og gæðamála tóku á móti gestum.

Festi, sem hefur verið aðildarfélag Festu síðan 2013, kynnti áherslur, aðgerðir og áskoranir sem tengjast sjálfbærnivegferð samstæðunnar en metnaður í þeim efnum hefur vakið athygli síðustu ár. Þetta fræddu þau Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri, Ásdís Björg Jónsdóttir, forstöðumaður samfélags- og gæðamála og Kolbeinn Finnsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs okkur um.

Sjálfbærnistefna Festi og rekstrarfyrirtækjanna er byggð á alþjóðlegum viðmiðum Nasdag um UFS, TCFD áhættugreiningu og EU Taxonomy. Þá stefna þau á að móta sig inn í vísindalegu viðmiðin um loftslagsmarkmið fyrirtækja, Science Based Targets initiative (SBTi).

Örfá dæmi um sjálfbærnimarkmið Festi eru kolefnishlutleysi, sjálfbærnimiðað birgjamat, auknar fjárfestingar í grænum orkulausnum, vottuð nýskógrækt sem skráð er í Loftslagsskrá og starfsmanna fræðsla sem sérsniðin er að fjölþjóðlegum hópi félagsins en hjá Festi starfa 56 þjóðerni.

Þá var sjálfbærniskýrsla Festi vottuð af Deloitte þrátt fyrir að ekki enn sé um að ræða lagalega kröfu, en mun það þó undirbúa samstæðuna fyrir tilvonandi CSRD-tilskipun Evrópusambandsins um sjálfbærniupplýsingagjöf.

Eins og ávallt á Tengslafundum áttu aðildarfélögin líflegt og fróðlegt samtal um hin ýmsu hliðar sjálfbærni í rekstri.


Deiglufundur um félagslega þátt EU taxonomy


Aðildarfélög Festu hittust 18. apríl á rafrænum Deiglufundi þar sem umræðuefnið var félagslegur þáttur sjálfbærni og EU taxonomy. 

Arnar Sveinn Harðarson, lögmaður og fulltrúi hjá LOGOS lögmannsþjónustu gaf okkur innsýn inn í þá löggjöf sem nú er í vinnslu hjá ESB og snýr að félagslegum þáttum í sjálfbærnivegferð fyrirtækja – EU Social Taxonomy. Um er að ræða löggjöf sem mun hafa mikil áhrif í nánustu framtíð. 


Sara Dögg Svanhildardótti frá Þroskahjálp fræddi okkur um þau tækifæri og úrræði sem standa fyrirtækjum til boða þegar kemur að því að ráða til sín einstaklinga með fötlun og/eða skerta starfsgetu og þá viðeigandi aðlögun sem er bundin í lög og í samningi Sameinuðu þjóðanna. 

 Síðan fengum við innblástur frá þremur ólíkum og misstórum aðildarfélögum Festu sem hafa sinnt þessum málefnum með prýði:


VAXA í farsælu samstarfi við Vinnumálastofnun og Reykjavíkurborg hefur ráðið til sín 10 kraftmikla einstaklinga sem flest hafa nú starfað í nokkurn tíma hjá fyrirtækinu. Um er að ræða flóttafólk sem kom til landsins síðustu ár og hefur auðgað vinnustaðinn til muna. Hjá VAXA starfa nú 11 þjóðerni. Hólmfríður Kristín Árnadóttir frá VAXA sagði frá þessu.
 
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Króununnar, kynnti þau skýru markmið og aðgerðaáætlun Krónunnar þegar kemur að því að „jafna leikinn” í tengslum við m.a. starfsfólk sem er af erlendum uppruna. Til að jafna leikinn eru mikilvægt að vera „meðvituð um sína eigin ómeðvituðu hlutdrægni”. Dæmi um það sem þessi stefna hefur skilað er fjölgun á kvenkyns og hinsegin verslunarstjórum og einnig verslunarstjórum af erlendum uppruna. „Við vitum að það er ákvörðun að jafna leikinn og veita fólki jöfn tækifæri” eru orð sem kjarna þessa stefnu vel.

Marel er með stefnu um fjölbreytileika og þátttöku og hlutur af því er m.a. þjálfa starfsfólk til þess að vera meðvitað um „fjölbreytileika í allri sinni mynd.“ Hjá Marel er sérstakt stöðugildi sem heldur utan um þessi mál. Markmiðið er að allt starfsfólk upplifi að það sé metið að verðleikum og taki þátt. Hildur Arnars Ólafsdóttir, mannauðstjóri Marel sagði okkur frá þessu.

Fréttayfirlit