Ungmennaráð Festu
Ungmennaráð Festu er vettvangur fyrir ungt fólk sem vill hafa áhrif á sjálfbæra umbreytingu í íslensku atvinnulífi og samfélagi. Fyrsta ungmennaráðið var stofnað í janúar 2026. Í ungmennaráði sitja einstaklingar á aldrinum 18 - 28 ára, sem starfa hjá aðildarfélögum Festu og eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á sjálfbærni og samfélagsmálum. Ráðið gegnir mikilvægu hlutverki við að færa nýja sýn og rödd ungs fólks inn í starf Festu og styðja við áframhaldandi þróun félagsins.
Skilyrði fyrir þátttöku í ungmennaráðinu er að starfa hjá einu aðildarfélaga Festu. Áhugasamt starfsfólk getur sótt um að ganga í ungmennaráðið með því að senda póst á festa@sjalfbaer.is eða kristinn@sjalfbaer.is.











