29.06.23

Elva Rakel Jónsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Festu

Það gleður okkur að tilkynna að stjórn Festu hefur gengið frá ráðningu á nýjum framkvæmdastjóra Festu en Elva Rakel Jónsdóttir, mun hefja störf 1. október næstkomandi.


Festa hefur átt frábært samstarf við Elvu og Umhverfisstofnun, sem er aðili að Festu, og okkur starfsfólki og stjórn Festu hlakkar mikið til að starfa með Elvu að okkar víðtæku, brýnu og skemmtilegu verkefnum sem framundan eru. Hún hefur sýnt drifkraft og mikla leiðtogahæfni í sínum störfum. 

 

Elva hefur viðamikla reynslu af verkefnum sem styrkja stoðir sjálfbærni og hefur leitt Umhverfisstofnun á sviði loftslagsmála og hringrásarsamfélagsins. Elva hefur átt farsælt samstarf við atvinnulífið sem framkvæmdastjóri umhverfismerkisins Svansins og hefur stutt fyrirtæki við að sýna fram á umhverfislegan árangur. Í störfum sínum hefur hún lagt mikla áherslu á að miðla aðgerðarmiðuðum lausnum bæði til atvinnulífs og stjórnvalda.

 

„Það leggst einstaklega vel í mig að takast á við spennandi verkefnaflóru Festu, sem hefur á undanförnum árum stimplað sig rækileg inn sem lykilrödd í breiðri umræðu um sjálfbærnimál atvinnulífsins. Ég nálgast verkefnið af mikilli tilhlökkun, auðmýkt og krafti. Ef við sem samfélag ætlum að ná árangri í átt að sjálfbærni þá þurfum við að virkja þrótt allra og hafa atorku til að hugsa í nýjum lausnum.“