12.04.2024
Culture eats strategy for breakfast
Þetta klassíska kvót Peter Drucker sem Gunnlaugur Bjarki frá Isavia sagði í kynningu á Deiglufund aðildarfélaga Festu 10. apríl, kjarnar sannarlega efni fundarins.
Þar fórum við ofan saumana á hvernig heiðarleg samskipti og skýr stefnumótun tengist árangri í sjálfbærni. Ljóst er að boltinn fer ekki almennilega að rúlla fyrr en stjórnendur og starfsfólk eru öll meðvituð um hver er tilgangur vegferðarinnar og eru til í ferðalagið sem framundan er.
Stefnumótun er grundvallartól til að móta fyrirtækjamenningu og samþætta sjálfbærni inn í kjarnastarfsemi. Svo þarf að miðla - og þá skiptir máli hvernig við segjum frá hlutunum og að við munum við hvern við erum að tala. Grundvöllur breytinga er nefninlega opin samskipti sem endurspegla skýran tilgang með vegferðinni.
Skemmtilegt dæmi um klóka sjálfbærnimiðlun er þegar sænska útivistarfyrirtækið Haglöfs varð „kolefnishlutlaust.“
“We are now climate neutral - but we had to cheat to get there.”
Um þetta heyrðum við í innihaldsríku erindi frá Ásdísi Sigurbergsdóttur og Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur frá samskiptarfyrirtækinu
Aton.JL, sem hefur verið aðildarfélag Festu síðan 2022.
Þrjú aðildarfélög Festu sem hafa einstaka reynslu í þessum efnum héldu síðan erindi. Þau voru Isavia (Gunnlaugur Bjarki Snædal), Advania (Þóra Rut Jónsdóttir) og Ölgerðin (Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir). Kolbeinn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Svarma og stjórnarmaður Festu stýrði fundinum.
Þökkum þeim öllum, ásamt þeim sem mættu á fundinn fyrir samveruna.

