15. 02 2023 - 09:30-11:00
Tengslafundur Festu – Advania
@Advania
Advania býður aðildafélögum Festu til tengslafundar

Advania býður til tengslafundar Festu í höfuðstöðvum Advania, Guðrúnartúni 10 kl 8:30-10:00 þann 15. febrúar.
- Ægir Már Þórisson forstjóri Advania og Þóra Rut Jónsdóttir sérfræðingur í sjálfbærni fara yfir stefnu félagsins og sjálfbærni vegferð.
Farið verður yfir aukna upplýsingagjöf, áherslur nýrra eigenda og þau tækifæri og áskoranir sem Advania stendur frammi fyrir sem leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni. Velt verður upp hlutverki öryggismála í sjálfbærnimenginu og hvernig tæknin getur verið hluti af lausninni.
- Boðið verður upp á léttar veitingar
- Skráning nauðsynleg
- Athugið að fundurinn er eingöngu opinn fyrir starfsfólk aðildafélaga Festu
