Loftslagsmælir og handbók Festu

Write a few words about the company or service
Fyrirtæki geta dregið úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum og takið þannig þátt í baráttunni við hamfarahlýnun og unnið að framgangi heimsmarkmiðann. Aðgerðir fyrirtækja, sveitafélaga og stofnana í loftslagsmálum skipta sköpum og án þeirra er ólíklegt að þjóðir heims geti staðið við markmið Íslands að verða kolefnishlutlaust fyrir árið 2040. Loftslagsmælir Festu er þér að kostnaðarlausu. Hann var hannaður og uppfærður af fyrirtækjum og Reykjavikurborg og er í samræmi við alþjóðlega og innlenda staðla. Mælirinn má nálgast í vefútgáfu á ClimatePulse.is og er afar einfaldur í notkun og hverju skrefi fylgja leiðbeingar tengdar þeim upplýsingum sem skrá þarf inn. Mælinum fylgir þá ítarlegt kennslumyndband og reynslusögur fyrirtækja sem hafa hafið sína vegferð. Loftslagsmælir Festu er hugsaður sérstaklega fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem eru að taka sín fyrstu skref í loftlagsaðgerðum og mælingum. Mælirinn byggir á alþjóðlega viðurkenndum mælikvörðum og er aðlagaður að íslensku umhverfi. Þegar búið er að svara spurningunum færðu samantektarskýrslu og getur valið að deila niðurstöðunum með Festu. Fræðsluefni um loftslagsaðgerðir – framleitt af Festu fyrir styrk frá Loftslagssjóði Kennslu­mynd­band þar sem Sæv­ar Helgi Braga­son leið­ir þig skref fyr­ir skref í gegn­um notk­un á Lofts­lags­mæli Festu. Hvaða gögn þarftu að hafa til að mæla þitt kol­efn­is­spor og hvar nálg­ast þú þau? Af hverju er mik­il­vægt að draga úr og mæla kol­efn­is­spor frá rekstri og hvar byrj­um við? Fræðslu­mynd­band þar sem Festa fékk til liðs við sig sér­fræð­inga frá fimm ólík­um að­ild­ar­fé­lög­um sín­um sem lýsa í ör­fá­um orð­um sinni veg­ferð þeg­ar kem­ur að því að setja sér stefnu í lofts­lags­mál­um og mæla kol­efn­is­spor frá rekstri. Hand­bók fyr­ir smærri fyr­ir­tæki – Stefnu­mót­un í lofts­lags­mál­um og mæl­ing­ar á kol­efn­is­spori. Hvar byrj­ar þú þína veg­ferð og hvernig trygg­ir þú að að­gerð­ir séu mark­viss­ar og skili ár­angri. Hnit­mið­uð hand­bók sem er af­ar ein­föld í notk­un. Öll gögn fræðslupakk­ans og að­gang­ur að Lofts­lags­mæli Festu eru op­in öll­um og án end­ur­gjalds.
Loftslagsmælir Festu