09.10.2024 - 08:30-10:00
Tengslafundur Festu – Össur / Embla Medical
Embla Medical, móðurfélag Össurar, býður aðildarfélögum Festu á Tengslafund á starfsstöð fyrirtæksins að Grjóthálsi 1-3, þann 9. október kl. 8:30-10:00.
Á fundinum verður farið yfir vegferð fyrirtækisins í sjálfbærni með áherslu á verkefni ársins 2024. Fjallað verður um stefnumótun sjálfbærni í alþjóðlegu fyrirtæki, undirbúning og innleiðingu á CSRD, markmið og aðgerðir í loftslagsmálum, og sjálfbærni í vöruþróun og aðfangakeðju.
Að erindum loknum verður boðið upp á spurningar úr sal og umræður. Gestum gefst tækifæri að spjalla og njóta léttra veitinga.
Dagskrá:
- Opnun fundar:
- Margrét Lára Friðriksdóttir, Executive Vice President People, Strategy & Sustainability
- Stefnumótun sjálfbærni í alþjóðlegu fyrirtæki:
- Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir, Global Sustainability Director
- Markmið og aðgerðir í loftslagsmálum:
- Agla Sól Pétursdóttir, Global Sustainability Specialist
- Sjálfbærni í vöruþróun:
- Ásdís Jóhannesdóttir, Director of Portfolio Management
- Sjálfbærni í aðfangakeðju:
- Gunnur Jónsdóttir, Director of Procurement
Margrét Lára Friðriksdóttir, Executive Vice President People, Strategy & Sustainability
Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir, Global Sustainability Director
Agla Sól Pétursdóttir, Global Sustainability Specialist
Ásdís Jóhannesdóttir, Director of Portfolio Management
Gunnur Jónsdóttir, Director of Procurement
Embla Medical er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks svo það geti lifað lífi án takmarkana. Hjá okkur starfa um 4000 starfsmenn í yfir 36 löndum.
- Athugið að Tengslafundir eru eingöngu opnir fyrir aðildarfélög Festu.
- Tengslafundir hafa verið hluti af starfi Festu í fjölda ára. Á Tengslafundi býður eitt aðildarfélag í einu hinum aðildarfélögum í heimsókn þar sem gestgjafinn deilir sinni þekkingu, reynslu og áskorunum þegar kemur að sjálfbærum rekstri. Á Tengslafundunum skapast ávallt áhugaverðar umræður og út frá þessum vettvangi myndast verðmæt sambönd.