15 ár af samstarfi um sjálfbæra framtíð


Sjálfbærni er forsenda samkeppnishæfni, áhættustýringar og langtímaverðmætasköpunar. Geta fyrirtækja til að samþætta sjálfbærni inn í starfsemi sína mun ráða úrslitum um samkeppnisstöðu þeirra til framtíðar.

Árið 2025 sýndi að umhverfið er orðið flóknara, hraðinn meiri og áhættan víðtækari. Loftslagsbreytingar, geopólitík, tæknibreytingar og auknar kröfur samfélagsins kalla á nýja tegund forystu og gera auknar kröfur til stjórna og stjórnenda. Alþjóðleg greining á helstu áhættuþáttum heimsins undirstrikar þessa þróun. Sjálfbærni er orðin hluti af skammtímaáhættu fyrirtækja. Áhættur á borð við öfgakennd veður, ójöfnuð, netógnir og truflanir í virðiskeðjum eru samtvinnaðar og hafa bein áhrif á rekstur og samkeppnishæfni. Þessi staða kallar á stjórnarhætti þar sem þessi viðfangsefni eru samþætt í eina heild og sjálfbærni verði kjarni stefnumótunar, áhættustýringar og ábyrgra stjórnarhátta. Áherslan þarf jafnframt að færast enn frekar frá skammtímaávöxtun yfir í varanlega verðmætasköpun fyrir hluthafa, samfélag og umhverfi.


Hlutverk Festu er að styðja við þessa umbreytingu. Í 15 ár hefur Festa skapað vettvang þar sem fyrirtæki, stofnanir og stjórnvöld læra hvert af öðru og færa sjálfbærni úr stefnu í framkvæmd. Í dag standa tæplega 200 fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir að samfélagi Festu sem byggir á einfaldri en kröftugri hugmynd: Við berum ábyrgð og ákvarðanir okkar skipta máli.


Árið 2025 var einstaklega viðburðarríkt hjá Festu þar sem við héldum og tókum þátt í fjölda viðburða, funda og ráðstefna eins og lesa má um í ársskýrslunni. 


Við styrktum jafnframt faglega innviði félagsins með stofnun ráðgjafaráða leiðandi sérfræðinga í atvinnulífinu á sviði umhverfis-, félags- og stjórnarhátta sem efla stefnumótun, málefnaumræðu og áhrif Festu.

Verkefnið Loftslagsleiðtogar atvinnulífsins þróaðist áfram og EN-ROADS vinnustofa hópsins sýndi hvernig ákvarðanir og samvinna geta fært umræðuna nær aðgerðum. Við styrktum einnig rödd Festu í stefnumótun, meðal annars með samtali við stjórnvöld og atvinnulíf um Atvinnustefnu Íslands og með umsögnum í samráðsgátt um frumvarp til laga um loftslagsmál, drög að atvinnustefnu og skýrslu um kolefnismarkaði. Málþing fyrir stjórnir og framkvæmdastjórnir var gríðarlega vel sótt og undirstrikaði að sjálfbærni er stjórnarverkefni sem krefst skýrrar sýnar og nýrrar hugsunar við stjórnarborðið. 


Árið 2026 er 15 ára afmælisár Festu og tækifæri til að horfa fram á veginn. Við viljum þakka aðildarfélögum, stjórn og starfsfólki Festu fyrir traust, fagmennsku og þann drifkraft sem liggur að baki árangri ársins.  Á sama tíma er ljóst að verkefnið fram undan er stórt og mikilvægt. Það hvernig við tökum ákvarðanir í dag mun móta samkeppnishæfni og samfélag morgundagsins.


Erla Ósk Ásgeirsdóttir stjórnarformaður og Elva Rakel Jónsdóttir framkvæmdastjóri Festu