FÓLK

Mannréttindi í réttlátri virðiskeðju


Virðiskeðjur nútímafyrirtækja hafa snertifleti við ótal einstaklinga um allan heim. Við vitum að víða er pottur brotinn og arðsöm framleiðsla byggir oft á bágum mannréttindum eða jafnvel barnaþrælkun. Í tengslum við Janúarráðstefnuna hélt Festa hliðarviðburð í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, UN Women, UNICEF, Félag Sameinuðu þjóðanna og UN Global Compact þar sem þessi mikilvægu mál voru rædd. Viðburðurinn var opinn öllum og haldinn í viðburðarsal Arion banka í Borgartúni. Nánar má lesa um viðburðinn undir liðnum “Viðburðir Festu” í ársskýrslunni. 


Vegvísir um félagslega sjálfbærni


Fyrsti vegvísir Festu um félagslega sjálfbærni var gefinn út á Janúarráðstefnu Festu. Vegvísinum er ætlað að veita aðildarfélögum og atvinnulífinu öllu yfirsýn yfir lög, reglur, staðla og mælitæki sem tengjast félagslegri sjálfbærni, auk þess að sýna hvernig markviss innleiðing getur stutt við framgang sjálfbærnimarkmiða.

Að vegvísinum komu fjöldi sérfræðinga og kann Festa þeim bestu þakkir. Þau eru Adriana Karolina Pétursdóttir, Alma Ýr Ingólfsdóttir, Aman Hasecic, Arnar Sveinn Harðarson, Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, Heiður Margrét Björnsdóttir, Helga Ögmundsdóttir, Herdís Sólborg Haraldsdóttir, Hildur Ólafsdóttir, Hildur Tryggvadóttir Flóvenz, Ingunn Agnes Kro, Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Þorgerður Einarsdóttir.


Hægt er að nálgast vegvísinn hér.


Deiglufundur um félagslega sjálfbærni


Á Deiglufundi um félagslega sjálfbærni og innri mannauð var sjónum beint að ávinningi fjölbreytts og öflugs mannauðs og hvernig mannréttindi, inngilding og jafnrétti styðja við sjálfbæran og árangursríkan vinnustað. Þar var jafnframt farið yfir alþjóðlega þróun og hvernig fyrirtæki bregðast við breyttum áherslum í þessum málaflokki.



Velsældarþing


Festa er samstarfsaðili Velsældarþingsins (Wellbeing Economy Forum) sem fer fram árlega í Hörpu. Í samvinnu við Embætti landlæknis skipulagði Festa lið á þinginu sem kallaðist Future-Proofing Business: Harnessing the Synergy of Wellbeing & Sustainability. Þar komu saman stjórnendur fyrirtækja og alþjóðlegir sérfræðingar til að ræða hvernig áhersla á velsæld eykur nýsköpun, viðnámsþrótt og árangur í rekstri. Sérstök áhersla var lögð á þau tækifæri sem felast í því að reka fyrirtæki í velsældarsamfélögum eins og á Íslandi.


Aðalfyrirlesarar voru Ketill Berg Magnússon, fyrrverandi mannauðsstjóri Marel og Andri Guðmundsson, meðstofnandi og fjármálastjóri VAXA. Í pallborðsumræðum voru þátttakendur meðal annars Bénédicte Peillon-Russo, sérfræðingur í umbreytingu og alþjóðlegur ráðgjafi hjá NATIVA, Ketill Berg Magnússon og Mustafa Kamala, læknir og meistaranemi í lýðheilsufræðum. 

 

Ungt fólk og sjálfbærni


Á Janúarráðstefnu Festu kynntu Festa, Deloitte og Stúdentaráð Háskóla Íslands niðurstöður nýrrar könnunar um viðhorf og aðgerðir ungs fólks í tengslum við loftslagsmál og sjálfbærni. Þetta var í fyrsta sinn sem slík könnun er framkvæmd hér á landi og byggir hún á alþjóðlegri rannsókn Deloitte. Könnunin var send til nemenda helstu háskóla landsins og SÍNE, Samtaka íslenskra námsmanna erlendis.


Niðurstöðurnar sýna meðal annars að ungt fólk telur stjórnvöld og fyrirtæki þurfa að gera meira til að takast á við loftslagsbreytingar og að flest hafa þegar breytt neysluhegðun sinni til að draga úr umhverfisáhrifum. Einnig kemur fram að tilgangur í starfi skiptir miklu máli fyrir vellíðan og starfsánægju ungs fólks.


Hægt er að skoða niðurstöðurnar hér.