HAGSÆLD

Málþing fyrir stjórnir og framkvæmdastjórnir


Festa stóð fyrir þörfu og áhugaverðu málþingi fyrir stjórnir og framkvæmdastjórnir aðildarfélaga undir yfirskriftinni Ábyrgð og hlutverk stjórna í sviptivindum samtímans.  Þar kom saman reynslumikið stjórnarfólk, forstjórar og sérfræðingar úr ólíkum áttum til að ræða helstu áhættur og áskoranir stjórna til skemmri og lengri tíma, hvort sem eru netöryggisógnir, loftslagsbreytingar, samfélagslegur þrýstingur eða óstöðugt efnahagsumhverfi. Nánar má lesa um málþingið undir liðnum “Viðburðir Festu” í ársskýrslunni. 


Hvatningaverðlaun Festu og Creditinfo


Festa hefur í fjölda ára unnið með Creditinfo að Hvatningarverðlaunum fyrir framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni. Árið 2025 hlaut Brim hf. verðlaunin.  Í umsögn dómnefndar sagði að félagið hafi sýnt með skýrum hætti hvernig sjálfbærni og fjárhagslegur árangur eru ekki aðskildir þættir heldur samtvinnaðir drifkraftar í rekstri fyrirtækisins. Í dómenefnd sátu Erla Ósk Ásgeirsdóttir formaður dómnefndar, fulltrúi Festu - miðstöðvar um sjálfbærni, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, fulltrúi Háskólans í Reykjavík og Ragnheiður Geirsdóttir, fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands.


Deiglufundur um gervigreind og sjálfbærni í rekstri


Gervigreind hefur áhrif á marga þætti sjálfbærni í rekstri fyrirtækja og stofnana og á Deiglufundi Festu var sjónum beint að þeim tækifærum og áskorunum sem þessari þróun fylgja. Á þessum rafræna fundi ræddu Reynir Smári Atlason frá Creditinfo, Gunnar Sigurðarson frá Samtökum iðnaðarins, Safa Jemai hjá Víkonnekt og Haukur Guðjónsson hjá Sundra um notkun gervigreindar við ákvarðanatöku, tækifæri í stjórnsýslu og hvernig gervigreind geti stutt við inngildingu á vinnumarkaði.

Hliðarviðburður á Innovation Week


Festa, í samstarfi við Trail Sustainability, Innrwrks og Kristínu Pétursdóttur, skipulagði hliðarviðburðinn Nordic Dialogues – Beyond Impact Series á Innovation Week í Reykjavík. Viðburðurinn var hluti af norrænni fundarröð um framtíð verðmætasköpunar. Umræða fundarins byggði á þeirri sýn að fyrirtæki séu lifandi kerfi og var sjónum beint að því hvað felist í heilbrigðum vexti í breyttum heimi og hvernig fjárfestingar með jákvæð áhrif geta skapað raunveruleg verðmæti. Samtalið var leitt af Kristínu Pétursdóttur og Amit Paul með þátttöku fulltrúa úr fjármálaumhverfinu. Fundurinn skapaði mikilvægan vettvang fyrir opið og málefnalegt samtal um þær áskoranir og tækifæri sem blasa við atvinnulífi og fjárfestum til framtíðar.


Samtal við stjórnvöld


Framkvæmdastjóri og formaður Festu funduðu með forsætisráðherra og menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra um mikilvægi samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs í þágu sjálfbærni. Í því samhengi bentum við á styrkleika Festu sem brúarsmið í þeim samtölum. Festa skilaði einnig inn umsögn í samráðsgátt um drög að Atvinnustefnu Íslands sem lesa má hér