Aðild að Festu veitir þér:
- Forskot í heimi þar sem lagalegar kröfur um sjálfbæran rekstur breytast hratt og eftirsókn í sjálfbærar fjárfestingar er mikil.
- Aðild að öflugu samstarfs-, kynningar- og tengslaneti fyrirtækja, stofnana og annarra skipulagsheilda sem vinna að sjálfbærni bæði hérlendis og í netverki Festu erlendis.
- Vinnustofur, deiglufundir og námskeið þar sem aðildarfélögum er leiðbeint við innleiðingu á sjálfbærni í rekstur fyrirtækja og stofnana.
- Öruggt og hlutlaust rými þar sem atvinnulíf og stjórnvöld eiga virkt samtal um sjálfbærni.
- Aðgangur að sérfræðiþekkingu og innsýn í framtíðarbreytingar, með tækifæri til að læra af fremstu sérfræðingum hérlendis og erlendis.
- Aðgang að samtölum, fræðslu og vinnustofum um framsæknar hugmyndir og aðferðarfræði við þróun sjálfbærra viðskiptamódela.
- Rafrænt fréttabréf Festu með nýjustu fréttum um þróun sjálfbærni.
- Afsláttakjör vegna funda, námskeiða eða kynninga á vegum Festu, samstarfsaðila og útgáfuaðila.
- Leyfi til að setja merki Festu á heimasíðu ykkar og ykkar getið á vef Festu.
- Umbreyting krefst úthalds. Festa hvetur þig áfram og gerir árangur sýnilegan með umfjöllun um verkefni sem þið vinnið að á sviði sjálfbærni.


