JÖRÐ


Loftslagsleiðtogar atvinnulífsins 
 
Festa hélt áfram metnaðarfullu starfi í umhverfis- og loftslagsmálum á árinu með virkri þátttöku aðildarfélaga. Einn liður í því er verkefnið
 Loftslagsleiðtogar atvinnulífsins, sem byrjaði árið 2024. Verkefnið, sem dregur innblástur frá svipuðum verkefnum víðsvegar um heiminn (Nordic CEO´s for a Sustainable Future), felur í sér að leiða saman forstjóra frá aðildarfélögum Festu til að bæði vinna að metnaðarfullum loftslagsmarkmiðum og hvetja stjórnvöld og önnur fyrirtæki til aðgerða. Forstjórar eftirfarandi fyrirtækja skipa hóp Loftslagsleiðtoga: Advania, Íslandsbanki, Landsbankinn, Marel, Ölgerðin, Orkuveita Reykjavíkur, Embla medical (áður Össur), Deloitte, Icelandair, Arion banki, Landsvirkjun, Festi, Eimskip, Heimar, Reitir, Hagar, HS Orka, Eik, Rio Tinto, Norðurál og Alcoa. 

Hópurinn hittist þrisvar á árinu. Í apríl ræddu loftslagsleiðtogarnir um kolefnismarkaði og kolefniseiningar, ásamt því stóra verkefni atvinnulífs og stjórnvalda að draga úr losun svo Ísland geti staðið við alþjóðlegar skuldbindingar. Í október bauð Festa hópnum, ásamt Jóhanni Páli, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að taka þátt í gagnvirka EN-Roads loftslagshermilíkaninu þar sem þau sáu í rauntíma hvernig ákvarðanir þeirra höfðu áhrif á þróun loftslagsmála. Að lokum fékk hópurinn kynningu á Atvinnustefnu stjórnvalda frá Sveinbirni Finnssyni, aðstoðarmanni ríkisstjórnarinnar, í desember. 


Deiglufundur um umbúðir og plast 


Umfangsmiklar breytingar á regluverki Evrópusambandsins sem snýr að umbúðum og umbúðarúrgangi (PPWR) urðu efni í fjölmennan Deiglufund.  Þar köfuðum við ofan í þessar breytingar og áttum samtal um áhrif þeirra og stöðu íslenskra fyrirtækja þegar kemur að því að minnka sóun og umhverfisáhrif frá umbúðum. 


Tengslafundur hjá Sorpu 


Sorpa bauð aðildarfélögum í heimsókn í húsakynni Góða hirðisins til að ræða meðal annars úrgangsstjórnun, hringrásarhagkerfið og skilvirkari auðlindanýtingu. Þar heyrðum við erindi frá starfsfólki Sorpu og Flöff sem snéru að því hvernig við eflum hringrás í rekstri og hvaða áskoranir blasa við. 


Vistspor Íslands  


Í júní stóð Festa, ásamt Umhverfis- og auðlindafræðideild Háskóla Íslands og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands, fyrir opnum viðburði í Norræna húsinu um vistspor Íslands og Earth Overshoot Day. Þar var fjallað um þróun vistspors Íslands frá 1961–2024, hvers vegna það er meðal þess hæsta í heimi og hvernig draga megi úr álagi á vistkerfi jarðar. Að loknum erindum fóru fram pallborðsumræður um leiðir til að minnka vistspor Íslands og hvernig nýta megi slíkar mælingar til að draga úr umhverfisáhrifum. 


Áhættustýring og loftslagsbreytingar 


Loftslagsbreytingar eru þegar farnar að hafa áhrif á íslenskt samfélag, hagkerfi og virðiskeðjur. Á sameiginlegum rafrænum viðburði Festu og Stjórnvísi skoðuðum við hvernig slíkar breytingar geta haft áhrif á rekstur, hvernig við getum beitt ímyndunarafli í áhættustýringu og hversu vel fyrirtæki og opinberir aðilar eru undirbúin fyrir vaxandi loftslagsáhættu.  

New York Climate Week 


Starfsfólk Festu tók á árinu í fyrsta sinn þátt í Climate Week sem árlega fer fram í New York samhliða allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Þarna fóru fram ótal viðburðir sem snúa að því hvernig atvinnulífið og stjórnvöld um allan heim vinna nú að því að draga úr losun og stilla saman strengi þegar kemur að aðlögun vegna loftslagsbreytinga. Þarna stigu á svið leiðtogar margra öflugust fyrirtækja heims þegar kemur að sjálfbærni á borð við IKEA og Patagonia og þjóðarleiðtogar frá ríkjum sem bæði eru stórlosendur og ríkjum sem nú þegar þurfa að eiga við alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga. Þá tóku þarna einnig þátt öflugir aktivistar á borð við Al Gore fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og Rainn Wilson leikara. 


Festa tók þá þátt í viðburðum á vegum íslensku sendinefndarinnar og þáði boð til sendiherra Íslands í New York sem forsætisráðherra og utanríkisráðherra buðu til. Elva Rakel framkvæmdastjóri Festu kom þá fram sem gestafyrirlesari í leiðtoganámi innan Columbia University í ferðinni. 


Loftslagsdagur Umhverfis- og orkustofnunar 


Elva Rakel, framkvæmdastýra Festu, tók þátt í dagskrá Loftslagsdagsins. Þema viðburðarins var Framtíð í jafnvægi: Hvernig finnum við jafnvægi milli náttúru og aðgerða? og þar átti Elva loftslagsspjall við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar. Skilaboð Elvu voru að þótt það komi stundum upp núningur um loftslagsverkefni þá þýði það ekki að verkefnin séu ómöguleg. Núningurinn endurspeglar einfaldlega að verið sé að vinna í flókum kerfum með marga snertifleti. Við ættum því ekki að afskrifa verkefni sem reynast krefjandi heldur byrja á því að velja aðgerðir sem skila margþátta ávinningi og bretta svo upp ermar gagnvart áskoruninni, því loftslagsbreytingar gefa okkur engan frest. 


Umsögn um frumvarp til laga um loftslagsmál 


Festa fagnaði frumvarpi um loftslagslög sem mikilvægu skrefi til aukins skýrleika og reglulegrar endurskoðunar markmiða Íslands í loftslagsmálum en telur þó að betur þurfi að skilgreina leiðina að markmiðunum. Festa sendi því umsögn um frumvarpið í samráðsgátt þar sem var lögð sérstök áhersla á sjónarhorn atvinnulífsins. Alls lagði Festa fram 11 athugasemdir við frumvarpið. Þar má nefna að meta ekki aðeins kostnað aðgerða heldur einnig kostnað aðgerðarleysis, skapa meiri fyrirsjáanleika fyrir fyrirtæki, efla nýsköpun og setja skýrari fjárhagslega hvata til grænna fjárfestinga. Einnig bentum við á mikilvægi þess að stjórnvöld og atvinnulíf vinni nánar saman, að opinber gögn verði aðgengilegri og að virðiskeðjulosun fái meira vægi. 


Hægt er að lesa umsögnina í heild hér.


Umsögn um Skýrslu um kolefnismarkaði


Festa skilaði umsögn í samráðsgátt um Skýrslu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um kolefnismarkaði og þá möguleika sem Ísland hefur á þessu sviði. Í umsögninni lagði Festa áherslu á mikilvægi samstarfs milli stjórnvalda og atvinnulífs við þróun og innleiðingu kolefnismarkaða og að Festa geti gegnt Festa geti gegnt lykilhlutverki í að leiða slíkt samstarf.


Hægt er að lesa umsögnina í heild r.