„Árið 2025 sýndi að umhverfið er orðið flóknara, hraðinn meiri og áhættan víðtækari. Loftslagsbreytingar, geopólitík, tæknibreytingar og auknar kröfur samfélagsins kalla á nýja tegund forystu og gera auknar kröfur til stjórna og stjórnenda. Alþjóðleg greining á helstu áhættuþáttum heimsins undirstrikar þessa þróun. Sjálfbærni er orðin hluti af skammtímaáhættu fyrirtækja. Áhættur á borð við öfgakennd veður, ójöfnuð, netógnir og truflanir í virðiskeðjum eru samtvinnaðar og hafa bein áhrif á rekstur og samkeppnishæfni. Þessi staða kallar á stjórnarhætti þar sem þessi viðfangsefni eru samþætt í eina heild og sjálfbærni verði kjarni stefnumótunar, áhættustýringar og ábyrgra stjórnarhátta. Áherslan þarf jafnframt að færast enn frekar frá skammtímaávöxtun yfir í varanlega verðmætasköpun fyrir hluthafa, samfélag og umhverfi.
Hlutverk Festu er að styðja við þessa umbreytingu. Í 15 ár hefur Festa skapað vettvang þar sem fyrirtæki, stofnanir og stjórnvöld læra hvert af öðru og færa sjálfbærni úr stefnu í framkvæmd. Í dag standa tæplega 200 fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir að samfélagi Festu sem byggir á einfaldri en kröftugri hugmynd: Við berum ábyrgð og ákvarðanir okkar skipta máli.“





































