Eiríkur Hjálmarsson kosinn í stjórn Festu
Aðalfundur Festu fór fram í gær – Ársskýrsla 2025 komin út

Stjórn Festu, frá vinstri: Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, Anton Sigfússon, Reynir Smári Atlason, María Rúnarsdóttir, Hlédís Sigurðardóttir, Eiríkur Hjálmarsson, Bjarni Már Gylfason, varaformaður og Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri.
Á Aðalfundi Festu, miðstöð um sjálfbærni, sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík í gær var Eiríkur Hjálmarsson, sjálfbærnistjóri Orkuveitunnar, kosinn nýr í stjórn Festu. Eiríkur býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu af vinnu tengdri sjálfbærnimálum síðustu áratugi og því mikill fengur fyrir Festu að fá hann til liðs við stjórnina. Auk hans voru Bjarni Már Gylfason frá Rio Tinto á Íslandi og María Rúnarsdóttir frá Heimum endurkjörin til næstu tveggja ára.
“Í mínum huga er Festa einstakt forystuafl í því brýna verkefni að búa afkomendum okkar lífvænlega framtíð. Það er með mikilli tilhlökkun að ég tek sæti í stjórn Festu – þessu landsliði sjálfbærninnar – til að vinna að og hvetja til áframhaldandi framfara í sjálfbærum rekstri fyrirtækja í landinu” segir Eiríkur.
Í stjórn Festu sitja fulltrúar sjö aðildarfélaga, auk fulltrúa frá Háskólanum í Reykjavík þar sem skrifstofa Festu er staðsett. Formaður er Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarkona í Bláa lóninu og varaformaður er Bjarni Már Gylfason frá Rio Tinto á Íslandi. Aðrir stjórnarmeðlimir eru Reynir Smári Atlason (Creditinfo), Anton Sigfússon (Hagar), Hlédís Sigurðardóttir (Arion Banki), María Rúnarsdóttir (Heimar) og Bryndís Björk Ásgeirsdóttir frá Háskólanum í Reykjavík. Rakel Eva Sævarsdóttir frá Trail sjálfbærniráðgjöf lauk fjögurra ára stjórnarsetu á fundinum og þakkar Festa henni kærlega fyrir ómetanlegt framlag til félagsins síðustu ár.
Ársskýrsla Festu komin út
Á Aðalfundinum var farið yfir ársreikning Festu og breytingar á samþykktum félagsins voru kynntar og samþykktar. Samhliða fundinum kom út ársskýrsla Festu fyrir árið 2025 þar sem lesa má um fjölbreytt verkefni félagsins og þá ótal viðburði sem Festa og aðildarfélög skipulögðu eða tóku þátt í á árinu.
Sjálfbærni er í dag lykilatriði þegar kemur að samkeppnishæfni, áhættustýringu og samkeppnishæfni fyrirtækja. Á árinu hélt Festa áfram að tengja saman atvinnulíf, stjórnvöld og stofnanir og styðja við aðildarfélög í að gera sjálfbærni að raunverulegum hluta af rekstrinum. Festa fagnar 15 ára afmæli í ár og horfir fram á veginn með skýra trú á að ákvarðanir dagsins í dag móti samkeppnishæfni og samfélag morgundagsins.
Lesa má ársskýrslu og skoða ársreikning hér.












