Röskun á aðfangakeðjum og áhrif loftslagsbreytinga stærstu áhættuþættir framtíðar

Festa Miðstöð um sjálfbærni • 2. október 2026

Fulltrúar atvinnulífs, stjórnsýslu, stofnana og samtaka ræddu áhættur og áskoranir Íslands á afmælisviðburði Festu.


Hátt í 100 fulltrúar úr íslensku atvinnulífi, opinbera geiranum, akademíu og félagasamtökum komu saman í Tónabíó í vikunni og kortlögðu helstu áhættuþætti sem Ísland þarf að bregðast við til ársins 2040. Tilefnið var 15 ára afmælisviðburður Festu – miðstöðvar um sjálfbærni sem bar yfirskriftina Ísland 2040: Hvað gerðum við rétt? Þegar horft var til næstu tveggja til þriggja ára voru efnahagsleg óvissa, verðbólga og upplýsingaóreiða efst á lista þátttakenda yfir áhættuþætti fyrir Ísland. Þegar horft var til framtíðar, til ársins 2040, breyttist myndin hins vegar verulega og viðkvæm staða Íslands gagnvart alþjóðlegum aðfangakeðjum var efst á lista og áhrif loftslags- og náttúruvár færðist þar á eftir.


Ísland árið 2040



“Markmið afmælisviðburðarins var að eiga samtal við fólk úr ólíkum geirum um hvernig samfélag við viljum byggja hér á Íslandi til framtíðar, hvernig við viljum skapa verðmæti, hvernig vinnustaði við viljum sjá og ekki síst hvaða áhættuþáttum við verðum að mæta til að tryggja okkur þá framtíð. Þegar við höfum skýra mynd af áhættuþáttunum sem við teljum áhrifamesta verður auðveldara að ræða hvaða ákvarðanir við þurfum að taka í dag til að bregðast við,“ segir Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Festu.

Þátttakendur á viðburðinum unnu með 16 áhættuþætti byggða á Global Risks Report 2026 frá Alþjóðaefnahagsráðinu (World Economic Forum) og þeir síðan yfirfærðir yfir á Ísland. Áhættuþættirnir spönnuðu efnahagsmál, alþjóðaviðskipti og geopólitík, tækni og upplýsingar, samfélagslega þætti og loftslagsbreytingar. Þegar þátttakendurnir mátu áhættuþættina hver fyrir sinn geira til næstu tveggja til þriggja ára voru efnahagssamdráttur, verðbólga og upplýsingaóreiða meðal stærstu áhættuþáttanna. Óvissa og áhætta tengd gervigreind og netöryggi fylgdu þar á eftir. Þegar horft var til ársins 2040 varð hins vegar skýr viðsnúningur. Öfgakenndir veðuratburðir á Íslandi og erlendis færðust úr níunda sæti í það fyrsta og alvarlegar breytingar á kerfum jarðar úr fimmtánda sæti í annað, sem rýmar mjög við alþjóðlegar niðurstöður Global Risk Report. Á sama tíma færðust efnahagslegir áhættuþættir niður listann.


Þurfum að opna augun og virkja ímyndunaraflið


Í hringborðsumræðum þurftu þátttakendur að kortleggja og forgangsraða þeim áhættuþáttum sem skiptu mestu máli fyrir heildina og komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvaða fimm áhættuþættir gætu haft mest áhrif á Ísland til lengri tíma litið. Þar birtist önnur áhugaverð niðurstaða. Röskun á mikilvægum aðfangakeðjum var sá áhættuþáttur sem oftast var nefndur í hópaumræðunum, þrátt fyrir að hafa ekki verið jafn ofarlega á lista þegar þátttakendur mátu áhættuna hver fyrir sinn geira. Umræðan virðist þannig hafa fært athyglina frá einstökum þjóðhagslegum þáttum yfir á stærra samhengi og þá staðreynd að Ísland er eyja sem er háð alþjóðlegum aðfangakeðjum fyrir fjölmargar nauðsynjar.

Þátttakendur ræddu hvernig þessir áhættuþættir geta tengst og magnað hver annan. Hrun vistkerfa og breytingar á náttúrukerfum geta til dæmis haft áhrif á matvælaöryggi og fiskistofna, á meðan öfgaveður getur valdið afurðaskorti, verðhækkunum og tjóni á innviðum. Geopólitísk spenna og átök geta jafnframt truflað aðfangakeðjur og haft áhrif á aðgengi að eldsneyti, áburði, hráefnum og öðrum nauðsynjum. Margir aðrir áhættuþættir komust á blað, til að mynda versnandi heilsufar, aukið ójafnrétti og upplýsingaóreiða. Það sem stóð uppúr umræðunum var hversu samtengdir áhættuþættirnir eru og að atburðir sem eiga sér stað jafnvel langt utan Íslands geta haft bein áhrif á efnahag, atvinnulíf og lífsgæði hér á landi. Þátttakendur voru að lokum sammála um að breiðfylkingu atvinnulífs, stjórnvalda og annarra hagaðila þurfi til að byggja upp viðnámsþrótt Íslands til framtíðar.


“Að opna augun fyrir áhættu sem steðjar að hjálpar okkur að hugsa til langs tíma og auka seiglu. En við þurfum líka að virkja ímyndunararaflið til að sjá fyrir okkur hvert við viljum stefna og hvar við viljum lenda. Ef við hrærum okkur í góðan kokteil sem inniheldur bæði bestu fáanlegu gögn ásamt stórri skvettu af ímyndunarafli og innri áttavita þá fáum við notadrjúgan drykk sem gagnast okkur við að taka skynsamlegar rekstrarákvarðanir næstu árin. Ákvarðanir sem tökum í dag og líka þær sem við tökum ekki, munu móta samfélagið sem við búum í árið 2040, “ segir Elva.



Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 4. júní 2026
Ályktun Loftslagsleiðtoga Festu
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 27. maí 2026
Aðalfundur Festu fór fram í gær – Ársskýrsla 2025 komin út
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 22. maí 2026
Lærdómur Emblu Medical frá Nordic Circular Design Programme
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 16. mars 2026
Ákall um skýrari umræðu um loftslagsaðgerðir
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 2. febrúar 2026
Vel heppnuð Janúarráðstefnu Festu á föstudag
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 31. janúar 2026
"Ö flugur vettvangur fyrir áhrifaríkt samtal um sjálfbærnimál"
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 27. janúar 2026
Janúarráðstefna Festu á föstudaginn
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 8. janúar 2026
Janúarráðstefna Festu 2026
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 24. nóvember 2025
Við leitum að áhugasömu ungu fólki á aldrinum 18 - 28 ára sem starfar hjá aðildarfélögum Festu.
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 18. nóvember 2025
Málþing Festu fyrir stjórnir og framkvæmdastjórnir Það var frábær mæting á annað málþing Festu fyrir stjórnir og framkvæmdastjórnir aðildarfélaga sem fór fram á Grand Hótel á föstudag undir yfirskriftinni „Ábyrgð og hlutverk stjórna í sviptivindum samtímans”. Málþingið leiddi saman stjórnarfólk úr fjölbreyttum atvinnugreinum þar sem við ræddum þær áhættur og tækifæri sem munu móta starfsemi stjórna á næstu árum þegar geopólitísk óvissa, loftslagsbreytingar, hröð tækniþróun og samfélagslegar áskoranir móta rekstrarumhverfi fyrirtækja. Í erindum og pallborðsumræðum kom skýrt fram að sjálfbærni er kjarni stefnumótunar fyrirtækja og að öflug áhættustýring og ákvarðanataka krefst bæði ímyndunarafls og aðlögunarhæfni.
Fleiri færslur