Frá hugmynd til hringrásar

Festa Miðstöð um sjálfbærni • 22. maí 2026

Lærdómur Emblu Medical frá Nordic Circular Design Programme

„Það sem við lærðum hvað mest er að hugsa ekki um sjálfbærni eða hringrás eftir á, heldur alveg frá byrjun og sem hluta af rekstrinum. Með því að endurnýta hráefni í stað þess að kaupa alltaf ný getum við bæði dregið úr notkun auðlinda og lækkað kostnað”, segir Kristín Birna Birnisdóttir, verkfræðingur, sem starfar við nýsköpun í þróunarteymi Emblu Medical/Össur.


Kristín, og hópur starfsmanna Emblu Medical, tók í vetur þátt í Nordic Circular Design Programme, sex mánaða norrænu fræðslu- og þróunarverkefni sem styður fyrirtæki við að innleiða hringrásarhugsun í vöruþróun og rekstur. Verkefnið er leitt af samtökunum Ethica í Finnlandi í samstarfi við Nordic Innovation, Cradlenet í Svíþjóð, Norwegian Centre of Circular Economy í Noregi, Dansk Design Center í Danmörku og Festu á Íslandi. Í byrjun maí komu fulltrúar fyrirtækjanna saman í Asker í Noregi á uppskeruhátíð verkefnisins til að kynna sína vegferð.


Teymi Emblu skoðaði hvort endurnýta mætti hluta úr gervifótum, sem hafa annað hvort runnið út á tíma eða eru hættir í notkun, í stað þess að þeim sé fargað. Þegar aðgengi að hráefnum verður takmarkað, til dæmis vegna verðhækkana eða truflana í aðfangakeðjum, getur hringrásarhugsun dregið úr áhættum og skapað viðskiptalegt virði.



„Aðgangur að hráefnum eins og áli og títaníum er ekki endalaus og þetta verður sérstaklega mikilvægt þegar hráefnisverð hækkar. Þá þarf að nýta þau efni sem þegar eru til staðar eins vel og hægt er”, segir Kristín. Að hennar sögn snýst þetta ekki aðeins um umhverfisáhrif heldur einnig um viðskiptaleg og samfélagsleg áhrif. Ef það er hægt að lækka kostnað á vörum með því að endurnýta hráefnin gæti Embla Medical gert vörurnar aðgengilegri fyrir fleiri sem þurfa stoðtæki til að lifa sjálfstæðu og virku lífi. Þannig getur hringrásarhugsun opnað tækifæri til ná til fleiri notenda.



„Það sem kom okkur síðan kannski mest á óvart var að þegar við skoðuðum okkar eigin vörur kom í ljós að þær pössuðu betur inn í hringrásarhagkerfið en við höfðum gert ráð fyrir. Þó að vörurnar hafi ekki upphaflega verið hannaðar með hringrásarhugsun í huga fyrir 10-15 árum síðan, þá reyndust þær vera mun „hringrásarvænni“ en við bjuggumst við,” segir Kristín. Þetta sýnir að oft er hægt að byggja áfram á núverandi lausnum með markvissum breytingum, frekar en að byrja frá grunni.


„Þegar ólík sjónarhorn koma saman verða lausnirnar betri”


Átta fyrirtæki úr ólíkum áttum tóku þátt í verkefni Nordic Circular Design Programme sem skapaði vettvang fyrir fyrirtæki úr ólíkum geirum til að læra hvert af öðru.


„Það var mjög dýrmætt að kynnast öðrum fyrirtækjum sem eru að glíma við svipaðar áskoranir. Það skapaðist mikill samhugur og vilji til að deila reynslu og þekkingu,“ segir Kristín. Hún bætir við að einn stærsti ávinningurinn hafi verið að verkefnið kallaði fleiri teymi fyrirtækisins að borðinu. Verkefnið var því ekki bundið við einn hóp, heldur varð það sameiginlegt verkefni með þátttöku frá þróunar-, sölu, markaðs- og framleiðsluteymum. „Þegar ólík sjónarhorn koma saman verða lausnirnar betri,” segir Kristín. Hún bætir við að þessi nálgun hafi leitt til betri heildarsýnar á verkefnið og að lærdómurinn geti nýst í að þróa lausnir sem hægt er að skala yfir á fleiri stoðtæki.


„Við höfum lært gríðarlega mikið og myndum mæla með þessu fyrir fyrirtæki á öllum stigum í sinni vegferð. Ég held að þetta sé bara byrjunin á einhverju miklu meira,“ segir Kristín og segir að lokum að hringrásarhugsun muni án efa verða sífellt stærri hluti af starfsemi fyrirtækisins.

Festa mun áfram styðja við aðildarfélög sín í þeirri vegferð með því að skapa vettvang fyrir áframhaldandi samtal og samstarf fyrirtækja sem vilja innleiða hringrásarhugsun í vöruþróun sína. Nú er opið fyrir umsóknir í næstu umferð Nordic Circular Design Programme og áhugasöm fyrirtæki geta kynnt sér ferlið hér.


Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 16. mars 2026
Ákall um skýrari umræðu um loftslagsaðgerðir
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 2. febrúar 2026
Vel heppnuð Janúarráðstefnu Festu á föstudag
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 31. janúar 2026
"Ö flugur vettvangur fyrir áhrifaríkt samtal um sjálfbærnimál"
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 27. janúar 2026
Janúarráðstefna Festu á föstudaginn
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 8. janúar 2026
Janúarráðstefna Festu 2026
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 24. nóvember 2025
Við leitum að áhugasömu ungu fólki á aldrinum 18 - 28 ára sem starfar hjá aðildarfélögum Festu.
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 18. nóvember 2025
Málþing Festu fyrir stjórnir og framkvæmdastjórnir Það var frábær mæting á annað málþing Festu fyrir stjórnir og framkvæmdastjórnir aðildarfélaga sem fór fram á Grand Hótel á föstudag undir yfirskriftinni „Ábyrgð og hlutverk stjórna í sviptivindum samtímans”. Málþingið leiddi saman stjórnarfólk úr fjölbreyttum atvinnugreinum þar sem við ræddum þær áhættur og tækifæri sem munu móta starfsemi stjórna á næstu árum þegar geopólitísk óvissa, loftslagsbreytingar, hröð tækniþróun og samfélagslegar áskoranir móta rekstrarumhverfi fyrirtækja. Í erindum og pallborðsumræðum kom skýrt fram að sjálfbærni er kjarni stefnumótunar fyrirtækja og að öflug áhættustýring og ákvarðanataka krefst bæði ímyndunarafls og aðlögunarhæfni.
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 6. nóvember 2025
Steinunn Jakobsdóttir ráðin samskiptastjóri Festu
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 16. október 2025
Gagnvirk vinnustofa Festu með EN-ROADS loftslagslíkaninu
6. ágúst 2025
Vertu rödd sjálfbærni á Íslandi
Fleiri færslur