Fyrsta ungmennaráð Festu
"Öflugur vettvangur fyrir áhrifaríkt samtal um sjálfbærnimál"
Fyrsta ungmennaráð Festu, miðstöðvar um sjálfbærni, var kynnt á Janúarráðstefnu Festu sem fór fram í Silfurbergi Hörpu í gær. Stofnun ráðsins markar mikilvæg tímamót í 15 ára sögu Festu og er liður í því að efla enn frekar þátttöku ungs fólks í sjálfbærnistarfi á Íslandi. Í ungmennaráði Festu sitja 12 einstaklingar á aldrinum 18 - 28 ára, sem starfa hjá aðildarfélögum Festu og eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á sjálfbærni og samfélagsmálum. Ráðið mun gegna mikilvægu hlutverki við að færa nýja sýn og rödd ungs fólks inn í starf Festu til að styðja við áframhaldandi umbreytingu í íslensku atvinnulífi og samfélagi.
„Ég hef brennandi áhuga á því hvernig nýsköpun, tækniþróun og sjálfbærni geta stutt hvert annað og leitt til aukins árangurs í sjálfbærnivegferðinni okkar. Með þátttöku í ungmennaráði Festu vil ég efla þátttöku ungs fólks með ólíkan bakgrunn og styrkja tengsl á milli ólíkra hópa. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til að efla sjálfbærnihugsun og skapa ný tækifæri í íslensku nýsköpunarumhverfi,“ segir Júlía Huang, sérfræðingur í sjálfbærni hjá Arion banka.
„Ég bauð mig fram í ungmennaráð Festu vegna þess að þetta er öflugur vettvangur fyrir áhrifaríkt samtal um sjálfbærnimál, þar sem að hægt er að hafa raunveruleg áhrif. Meðlimirnir koma úr ólíkum áttum en taka þátt í starfinu á sömu forsendum. Ég hef þess vegna fulla trú á að slíkur hópur geti unnið að spennandi verkefnum. Ég vona að við sem hópur munum hafa jákvæð áhrif sem víðast út í samfélagið með því að lyfta upp þeim jákvæða ávinningi sem felst í sjálfbærni,“ segir Alda Marín Jóhannsdóttir, fulltrúi hjá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Raddir ungs fólks þurfa aukið vægi í ákvarðanatöku
Með stofnun ungmennaráðsins vill Festa tryggja að raddir og hugmyndir ungs fólks fái aukið vægi í ákvarðanatöku um sjálfbærni og þá samfélagslegu umbreytingu sem nauðsynleg er fyrir komandi kynslóðir. Meðlimir ráðsins sameinast í því að vilja læra hvert af öðru, hafa áhrif og brúa bilið milli kynslóða, stefnumótunar og framkvæmdar og vonast þau til að geta hvatt fyrirtæki og stjórnvöld til að taka ákvarðanir með sjálfbæra framtíð að leiðarljósi.
„Ungt fólk mun lifa lengst með þeim ákvörðunum sem teknar eru í dag í sjálfbærnimálum. Þess vegna skiptir máli að rödd okkar fái að heyrast í stefnumótun til framtíðar, segir Jón Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Samorku og meðlimur ungmennaráðsins. „Sjálfbær orkuskipti skipta mig mestu máli í dag. Þau eru án efa mikilvægasta verkefni sem Ísland stendur frammi fyrir, hvort sem litið er til efnahags, umhverfis eða þjóðaröryggis. Ísland hefur einstaka stöðu með 100% endurnýjanlega raforku, en næstu skref verða krefjandi og kalla á skýra framtíðarsýn, ábyrga uppbyggingu orkuinnviða og markvissa umræðu á opinberum vettvangi,“ segir Jón.
Ungmennaráð Festu vill leggja sitt af mörkum til að tryggja að sjálfbær umbreyting verði ekki aðeins umræðuefni heldur framkvæmd í verki, og að ungt fólk fái sæti við borðið. Festa er afar stolt af þessum öfluga hópi og hlakkar til samstarfsins framundan.
Ljósmynd: Ernir Eyjólfsson
Á myndinni eru: Helga Margrét Óskarsdóttir - Fulltrúi í tjóna- og forvarnarmálum hjá Eimskip, Júlía Huang - Sérfræðingur í sjálfbærni hjá Arion banka, Jóhanna Sól Erlendsdóttir - Sérfræðingar í sjálfbærni hjá Heimum, Ólöf Helga Þórmundsdóttir - Starfsmaður í Vörustjórnun hjá 66 Norður, Alda Marín Jóhannsdóttir, fulltrúi í Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, Guðni Þór Þórisson - Sérfræðingur í sjálfbærniráðgjöf hjá Deloitte, Jóna Rut Vignir - Sérfræðingur í stefnumótun og sjálfbærni hjá Íslandsbanka, Jón Gunnarsson - Verkefnastjóri greininga hjá Samorku, Pétur Melax – Sölustjóri hjá Bónus og Sara Júlía Baldvinsdóttir - Sérfræðingur í sjálfbærni hjá KPMG.
Á myndina vantar Rakel Söru Magnúsdóttur, vörustjóra hjá Elko og Kristjönu Mist Logadóttur, sérfræðing í markaðsteymi Advania.












