Sterkari rödd Íslands í ETS er forsenda samkeppnishæfni og árangurs í loftslagsmálum

Festa Miðstöð um sjálfbærni • 4. júní 2026

Ályktun Loftslagsleiðtoga Festu

Í dag sendi Festa sameiginlega ályktun frá Loftslagsleiðtogum Festu um viðskiptakerfi Evrópusambandsins um losunarheimildir (ETS-kerfið) á umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, fjármálaráðuneytið, utanríkisráðuneytið, atvinnuvegaráðuneytið og innviðaráðuneytið.  Undir ályktunina skrifa 18 forstjórar úr hópi Loftslagsleiðtoga Festu auk framkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífsins og stjórnarformanns Festu.

 

ETS kerfið hefur verið mikið í umræðunni undanfarna mánuði, en kerfið er eitt virkasta tól Evrópusambandsins til að draga úr losun frá þeim geirum sem heyra undir kerfið, svo sem frá flugi, skipaflutningum og iðnaði. Umræddar atvinnugreinar eru sérlega mikilvægar íslensku samfélagi og því brýnt að öll umsýsla, hagsmunagæsla, upplýsingagjöf og ráðstöfun opinberra tekna sem tengjast kerfinu sé sem allra skýrust. ESB fyrirhugar að fjölga geirum sem heyra undir ETS kerfið á næstu árum og því áríðandi að skerpa verulega á nálgun stjórnvalda hvað varðar vinnulag og gagnsæi í kringum ETS kerfið.


Í ályktun hópsins kemur fram sameiginlegt ákall um að íslensk stjórnvöld styðji við atvinnulífið með því að vera sterkari rödd varðandi þróun og umsýslu ETS-kerfisins. Ályktunin er í þremur liðum:


  1. Aukin hagsmunagæsla á evrópskum vettvangi
  2. Breytingar á almennum reglum ETS í stað undanþága 
  3. Aukið gagnsæi um tekjur og ráðstöfun fjármuna



Loftslagsleiðtogar Festu eru hópur forstjóra stærstu fyrirtækja landsins sem vilja sýna fordæmi í loftslagsmálum og kalla jafnframt eftir auknu samtali við stjórnvöld um sameiginlega vegferð í átt að settu marki. Hópurinn hittist reglulega á vegum Festu og fræðist um tengingar atvinnulífs og loftslagsmála. Í kjölfar síðasta fundar Loftslagsleiðtogahópsins þar sem þátttakendur fengu góða kynningu á ETS kerfinu frá Hrafnhildi Bragadóttur, sérfræðingi í umhverfislögfræði, sammæltist hópurinn um þessi þrjú megin atriði sem þyrfti að bæta úr hið fyrsta.


Með aukinni áherslu á þessa þætti mætti tryggja meiri sátt um kerfið, sinna betur nauðsynlegri hagsmunagæslu og blása nýju lífi í aðgerðir til að draga úr losun.


Hópurinn er tilbúinn í samtalið.


Ályktunina í heild má lesa hér.



Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 27. maí 2026
Aðalfundur Festu fór fram í gær – Ársskýrsla 2025 komin út
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 22. maí 2026
Lærdómur Emblu Medical frá Nordic Circular Design Programme
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 16. mars 2026
Ákall um skýrari umræðu um loftslagsaðgerðir
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 2. febrúar 2026
Vel heppnuð Janúarráðstefnu Festu á föstudag
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 31. janúar 2026
"Ö flugur vettvangur fyrir áhrifaríkt samtal um sjálfbærnimál"
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 27. janúar 2026
Janúarráðstefna Festu á föstudaginn
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 8. janúar 2026
Janúarráðstefna Festu 2026
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 24. nóvember 2025
Við leitum að áhugasömu ungu fólki á aldrinum 18 - 28 ára sem starfar hjá aðildarfélögum Festu.
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 18. nóvember 2025
Málþing Festu fyrir stjórnir og framkvæmdastjórnir Það var frábær mæting á annað málþing Festu fyrir stjórnir og framkvæmdastjórnir aðildarfélaga sem fór fram á Grand Hótel á föstudag undir yfirskriftinni „Ábyrgð og hlutverk stjórna í sviptivindum samtímans”. Málþingið leiddi saman stjórnarfólk úr fjölbreyttum atvinnugreinum þar sem við ræddum þær áhættur og tækifæri sem munu móta starfsemi stjórna á næstu árum þegar geopólitísk óvissa, loftslagsbreytingar, hröð tækniþróun og samfélagslegar áskoranir móta rekstrarumhverfi fyrirtækja. Í erindum og pallborðsumræðum kom skýrt fram að sjálfbærni er kjarni stefnumótunar fyrirtækja og að öflug áhættustýring og ákvarðanataka krefst bæði ímyndunarafls og aðlögunarhæfni.
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni 6. nóvember 2025
Steinunn Jakobsdóttir ráðin samskiptastjóri Festu
Fleiri færslur