Ungmennaráð Festu leitar að nýjum meðlimum
Umsóknarfrestur til 15. desember
Ungmennaráð Festu er að bæta við sig nýjum meðlimum og við leitum því að áhugasömu ungu fólki á aldrinum 18 - 28 ára sem starfar hjá aðildarfélögum Festu og vill leggja sitt af mörkum til að efla sjálfbærni í samfélaginu.
Ungmennaráðið var formlega stofnað á Janúarráðstefnu Festu á þessu ári og hefur haft í nógu að snúast. Ráðið gegnir mikilvægu hlutverki í að færa nýja sýn, ferskar hugmyndir og rödd ungs fólks inn í starf Festu. Meðal verkefna þess á árinu var viðburður í haust þar sem ungt fólk, Halla Tómasdóttir forseti og leiðtogar úr atvinnulífinu komu saman til að eiga samtal um framtíðina.
Helstu verkefni ungmennaráðsins eru:
- Áheyrnarfulltrúi í stjórn Festu: Einn fulltrúi ráðsins situr mánaðarlega stjórnarfundi Festu sem áheyrnarfulltrúi.
- Rýnihópur fyrir viðburði Festu:Ráðið veitir ráðgjöf og kemur með hugmyndir um efnistök, miðlun og þróun viðburða.
- Skipulagning viðburða:Ungmennaráðið skipuleggur sína eigin viðburði sem höfða sérstaklega til ungs fóks.
- Þátttaka í viðburðum Festu: Fulltrúar ráðsins taka þátt í viðburðum Festu eftir hentugleika, meðal annars Janúarráðstefnunni.
Hvernig er sótt um eða tilnefnt í ráðið?
Umsóknir og tilnefningar skal senda á festa@sjalfbaer.is ásamt:
- Stuttri lýsingu á umsækjanda (aldur, menntun og hlutverk innan fyrirtækis)
- Örstuttri greinargerð um áhuga viðkomandi á þátttöku í Ungmennaráði Festu.
Starfsfólk Festu og fulltrúar ungmennaráðs fara yfir allar umsóknir. Sæti í ráðinu er til tveggja ára.
Umsóknarfrestur er til 15. desember.












