Fjármagnið leitar þangað sem áhættan er þekkt

Festa Miðstöð um sjálfbærni • 16. nóvember 2026

Fjölmenni á málþingi Festu um fjárfestingar og sjálfbærni

Fjárfestar vilja sjá að fyrirtæki þekki áhættuna í rekstri sínum, geti brugðist við henni og leggi fram áreiðanlegar upplýsingar um þá sjálfbærniþætti sem hafa áhrif á rekstur og afkomu. Þetta voru meðal helstu skilaboða málþings Festu, Hvert leitar fjármagnið?, sem fór fram á Grand Hótel 12. nóvember. 



Þetta var í þriðja sinn sem Festa stendur fyrir málþingi sérstaklega ætlað fulltrúum í stjórnum og framkvæmdastjórnum aðildarfélaga. Þar komu saman fulltrúar fyrirtækja, banka, fjárfesta og lífeyrissjóða til að ræða hvaða þætti fjárfestar leggja áherslu á og hvað það þýði fyrir stjórnir og stjórnendur.  


  • Slide title

    Ari Helgason fjárfestir og stofnandi Transition Ventures

    Button
  • Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir framkvæmdastjóri Samkaupa

    Button
  • Slide title

    Halldór Benjamín Þorkelsson forstjóri Heima

    Button
  • Slide title

    Stefán Friðriksson, svæðisstjóri Norræna fjárfestingarbankans á Íslandi

    Button

Gögn um áhættu geta opnað dyr að fjármagni 


„Fjármagnið leitar þangað sem áhættan er þekkt“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, þar sem hann fór yfir það hvernig félagið hefur samþætt sjálfbærni, áhættugreiningu og rekstrarumbætur. Með því að markvisst safna og greina gögn, um meðal annars orkunotkun og ástand fasteigna, hefur félagið öðlast betri yfirsýn yfir áhættu í eignasafni sínu, skapað tækifæri til hagræðingar og styrkt rekstrarstöðu sína. Tæpur helmingur fasteignasafns Heima í dag eru sjálfbærnivottaðar byggingar og Halldór benti á að staða félagsins í sjálfbærnimálum hefði opnað aðgang að fjárfestum sem annars hefðu ekki komið inn með fjármögnun.  


Carla La Tona, sérfræðingur í sjálfbærum fjármagnsmörkuðum hjá Deutsche Bank, tók undir mikilvægi þess að fyrirtæki þekki og stýri áhættu sinni og nefndi að fjárfestar horfi í auknum mæli til fjárhagslegra áhrifa loftslagsbreytinga. Hún hvatti fyrirtæki til að segja sjálf sína sögu með áreiðanlegum upplýsingum um þá sjálfbærniþætti sem raunverulega skipta máli fyrir reksturinn. Carla nefndi einnig að þrátt fyrir neikvæða umræðu og breytingar á evrópsku regluverki haldi markaðurinn fyrir sjálfbær skuldabréf áfram að vaxa. 


Vöxtur gervigreindar skapar markað fyrir orkusparandi lausnir 


Í erindi sínu beindi Ari Helgason, fjárfestir og stofnandi vísi sjóðsins Transition Ventures, sjónum að tækifærunum sem felast í lausnum við loftslagsbreytingum og lagði áherslu á að hægt væri að byggja upp verðmæt fyrirtæki sem eru að takast á við loftslagsáskoranir. Ari sagði eftirspurn á markaði í auknum mæli knýja fram þróun nýrra lausna. Hann nefndi hraðan vöxt gervigreindar sem dæmi um þróun sem eykur orkuþörf og skapar um leið eftirspurn eftir lausnum sem nýta orku betur. Að hans mati geta fjárfestingar í fyrirtækjum sem þróa hagkvæmar lausnir við vaxandi orkuþörf og auðlindaskorti bæði skilað góðri fjárhagslegri ávöxtun og stuðlað að betri nýtingu auðlinda og þannig stuðlað að sjálfbærari framtíð. 


Stefán Friðriksson, svæðisstjóri Norræna fjárfestingarbankans á Íslandi, velti fram spurningunni hvernig fyrirtæki skapa varanleg verðmæti fyrir reksturinn, samfélagið og komandi kynslóðir. Hann veitti innsýn í hvernig bankinn horfir á sjálfbærni þegar ákvarðanir um fjárfestingu eru teknar og hvernig sjálfbærni getur verið hluti af því að meta gæði fyrirtækja. Fjárfestingar í sjálfbærum lausnum gætu meðal annars dregið úr orku- og hráefnisnotkun, lækkað rekstrarkostnað og minnkað líkur á kostnaðarsömum áföllum. Þannig gætu þær styrkt bæði fjárhagslega stöðu fyrirtækja og samfélagið í heild. 


Velferð starfsfólks er forsenda árangurs 


Verðmætasköpun til framtíðar snýst ekki eingöngu um fjárfestingar í tækni, innviðum og umhverfisvænum lausnum, heldur líka um fjárfestingu í fólki. Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Samkaupa, minnti á að mannauðurinn væri ein mikilvægasta auðlind fyrirtækja og sagðist vona að fjármagnið leitaði þangað sem fólk fengi að vaxa. Sigríður Hrefna sagði frá reynslu sinni hjá Nóa Síríus þar sem hún gengdi hlutverki forstjóra,  fyrirtækið var aðlagað að starfsfólkinu en ekki öfugt og velferð fólks sett í forgrunn samhliða viðsnúningi í rekstri. Hún hvatti fjárfesta til að horfa lengra en til hefðbundinna fjárhagslegra mælikvarða og spyrja hvernig fyrirtæki færu með fólkið sitt, því velferð starfsfólks væri forsenda fyrir árangri. 



Fjárfestar vilja gögn um það sem skiptir reksturinn máli 

 

Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður markaða hjá Arion banka, stýrði pallborðsumræðum. Þar tóku þátt Ari Helgason, Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, Kristbjörg M. Kristinsdóttir, fjármálastjóri Stefnis, og Rebekka Ólafsdóttir, forstöðumaður áhættustýringar hjá Gildi lífeyrissjóði. 


Í líflegum umræðum kom fram að þótt minna fari fyrir sjálfbærni í umræðunni þýði það ekki að fyrirtæki séu ekki að einblína á þessi mál. Fjárfestar gera fremur ráð fyrir að fyrirtæki hafi þessi mál í lagi en að þurfa að spyrja sérstaklega um þau. Þátttakendur bentu á að þótt kröfur evrópsks regluverks breytist þá vilja fjárfestar áfram fá traustverðugar upplýsingar um þá sjálfbærniþætti sem hafa raunveruleg áhrif á rekstur og fjárhag fyrirtækja. 


Áhersla var lögð á að sjálfbærni og fjárhagsleg ávöxtun væru ekki andstæður heldur væri þekking á áhættu, góðir stjórnarhættir og ábyrg langtímahugsun og í raun  forsenda verðmætasköpunar. Áhersla á sjálfbærni dregur úr áhættu og skapar verðmæti til lengri tíma. Þátttakendur minntu jafnframt á að loftslagsbreytingar, auðlindaskortur og aðrar langtímaáskoranir hverfa ekki þótt geopólitískar áherslur breytist. 


Rauði þráður málþingsins var skýr: Sjálfbærni skapar mest verðmæti þegar hún er samþætt stefnu, stjórnun og daglegum rekstri fyrirtækja. Fyrirtæki sem þekkja eigin áhættu, einbeita sér að þeim þáttum sem raunverulega skipta máli, fjárfesta í fólki og geta sýnt fram á ávinning aðgerða með áreiðanlegum gögnum munu að endingu standa betur að vígi í samkeppninni um fjármagn. 

 



  • Slide title

    Á málþingið mættu fulltrúar í stjórnum og framkvæmdastjórnum aðildarfélaga Festu

    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 12. nóvember 2026
Í aðsendri grein á Vísi þann 12. nóvember 2026 eru settar fram spurningar um aðild að Festu og trúverðugleika sjálfbærnivinnu. Af því tilefni vill stjórn Festu skýra hvað aðild að félaginu felur í sér. Festa – miðstöð um sjálfbærni eru sjálfstæð félagasamtök sem leiða saman fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og háskóla til að efla sjálfbærni í rekstri. Hlutverk félagsins er að byggja brýr á milli aðila og skapa þeim samvinnuvettvang til að mæta kröfum og grípa tækifæri sem felast í sjálfbærnivegferðinni, samfélaginu öllu til heilla. Aðildarfélög taka þátt á jafnræðisgrundvelli, deila reynslu og vinna saman að lausnum. Hvert aðildarfélag mótar sína stefnu og ber ábyrgð á eigin starfsemi og þátttöku í öðrum samtökum. Í samhengi áskoranna nútímans þá þýðir það að félagið býður meðal annars upp á samtöl á milli atvinnugeira um áhættu í virðiskeðjum íslenskra rekstraraðila vegna þátta eins og loftslagsbreytinga, geopólitík og mannréttindabrota. Það þýðir að félagið virkjar samtal á milli forstjóra stórfyrirtækja og stjórnvalda um aðgerðir í loftslagsmálum og hvernig megi skapa sátt um hröðun árangurs. Félagið lyftir upp samtali um hringrásarlausnir og verndun líffræðilegrar fjölbreytni í hönnun, innkaupum, iðnaðarferlum og regluverki. Félagið varpar ljósi á reynslusögur íslenskra fyrirtækja sem hafa með árangursríkum hætti boðið upp á atvinnu með stuðningi og aukið þannig hvoru tveggja lífsgæði starfsfólks með frábrugðna starfsgetu og starfsánægju alls starfsmannahópsins. Félagið stofnar til samvinnu margra og ólíkra hagaðila með það eina hagsmunamál að auka sjálfbærni í samfélaginu í heild. Markmið Festu er að endingu verði félagið sjálft óþarft því félagsleg, umhverfisleg og hagræn sjálfbærni verði orðin normið og samtvinnuð öllum rekstri. Þeir rekstraraðilar sem ganga í félagið koma allir inn sem jafningjar. Sérfræðingur frá ráðuneyti, listaháskóla og sjávarútvegsfyrirtæki geta allir hist og rætt saman á faglegum grundvelli án þess að þurfa að hafa sína hagsmunagæslu með sér í farteskinu. Þannig birtist kjarni starfssemi Festu, sem leiðarljós um samvinnu þvert á geira, því ljóst er að enginn leysir úr sjálfbærni áskorunum samtímans upp á eigin spýtur. Festu er mikið í mun að ýta undir góða starfshætti og við inngöngu í Festu skrifa öll aðildarfélög undir siðareglur sem hvetja til fagmennsku og gagnsærrar upplýsingagjafar um sína sjálfbærnivinnu. Festa mun áfram leggja sitt af mörkum til að skapa rými fyrir samtal, samvinnu og lausnaleit í þágu samfélagsins alls. Siðareglur Festu: Um Festu - Festa
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 2. október 2026
Fulltrúar atvinnulífs, stjórnsýslu, stofnana og samtaka ræddu áhættur og áskoranir Íslands á afmælisviðburði Festu.
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 4. júní 2026
Ályktun Loftslagsleiðtoga Festu
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 27. maí 2026
Aðalfundur Festu fór fram í gær – Ársskýrsla 2025 komin út
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 22. maí 2026
Lærdómur Emblu Medical frá Nordic Circular Design Programme
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 16. mars 2026
Ákall um skýrari umræðu um loftslagsaðgerðir
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 2. febrúar 2026
Vel heppnuð Janúarráðstefnu Festu á föstudag
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 31. janúar 2026
"Ö flugur vettvangur fyrir áhrifaríkt samtal um sjálfbærnimál"
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 27. janúar 2026
Janúarráðstefna Festu á föstudaginn
Eftir Festa Miðstöð um sjálfbærni • 8. janúar 2026
Janúarráðstefna Festu 2026
Fleiri færslur