Hvar byrja ég?

Leið­ar­vís­ir


Hvar er best að byrja?


Það eru marg­ar og ólík­ar leið­ir sem standa okk­ur til boða á sjálf­bærniveg­ferð­inni. Skref­in eru bæði stór og lít­il, öll hafa þau áhrif.

Veldu þína leið

Mikilvægt er að hefja vegferðina til sjálfbærni sem allra fyrst. En hvernig er sjálfbærni í framkvæmd? Hvernig er hægt að innleiða sjálfbærni í daglegan rekstur fyrirtækja og stofnana?


Hægt er að fara mismunandi leiðir — mikilvægt er að fyrirtæki og stofnanir finni leið sem hentar.


Hvar liggja styrkleikar þíns fyrirtækis, sveitafélags eða stofnunar þegar kemur að sjálfbærni? Fyrsta skrefið er að staldra við og meta það.


Þegar að því kemur getur verið gott að líta til aðferðarfræði sjálfbærni mikilvægisgreininga (e. materiality assessment).


Stundum er svo miklu meira gert en við áttum okkur á. Svo áttum við okkur líka á því, að hægt sé að gera svo miklu, miklu betur.


Við hjá Festu tökum fagnandi á móti þér og þínu fólki til að ræða fyrstu skrefin og hvernig þið getið gert enn betur. Tækifærin eru endalaus. Líttu á þetta sem kjörið tækifæri til þess að skerpa á samkeppnisforskotinu.


Hér er einungis lítið brot að af þeim tækjum og tólum sem hægt er að nota við innleiðingu á sjálfbærni í daglegan rekstur.


Hér má nálgast lista yfir ráðgjafa í sjálfbærni.

1. Verkfæri og vegvísar Festu

Vegvísir Festu um félagslega sjálfbærni

Dregur fram helstu þætti félagslegrar sjálfbærni og hjálpar rekstrareiningum að ná utan um málaflokkinn.


Vegvísir um líffræðilega fjölbreytni

Vegvísir Festu frá 2023 sem styður íslenskt atvinnulíf við að vernda lífríkið.


Vegvísir um lög og upplýsingagjöf

Yfirlit yfir sjálfbærnilöggjöf ESB og EES og hvað hún þýðir fyrir íslenskan rekstur og fjárfestingar.


Loftslagsmælir og handbók Festu

Ókeypis mælir og handbók fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki til að mæla kolefnisspor og setja sér loftslagsstefnu.


Vera – sjálfbærniviðmót Creditinfo

Samræmd leið til að miðla upplýsingum um umhverfis-, félags- og stjórnarhætti til hagaðila.


Vefkerfi Bravo Earth – umhverfisstjórn

Vefkerfi með verkefnabanka sem hjálpar til við að koma umhverfis- og loftslagsstefnu í framkvæmd.


2. Jörð – loftslag og umhverfi

Science Based Targets initiative (SBTi)

Vísindaleg viðmið og leiðbeiningar fyrir 50 geira um hvernig ná má 1,5°C markmiði Parísarsáttmálans.


Project Drawdown – lausnir í loftslagsmálum

Alþjóðleg gagnaveita yfir raunprófaðar lausnir til að draga úr hlýnun.


Hringrásarhagkerfið

Fræðsluefni, handbækur og verkfærakistur um viðgerðir, endurnýtingu og endurvinnslu í rekstri.


Loftslagsmælir fjármálafyrirtækja (PCAF)

Alþjóðlegur staðall fyrir fjármálafyrirtæki til að mæla losun í lána- og eignasöfnum.


The Glasgow Financial Alliance for Net Zero

Leiðarvísir um hvernig fjármálakerfið og fjárfestar geta hraðað vegferð fyrirtækja að kolefnishlutleysi.


Umhverfismerkið Svanurinn

Opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem tekur til alls lífsferils vöru og þjónustu.


Grænu skrefin

Hvatakerfi fyrir stofnanir ríkisins til að taka markviss skref í umhverfismálum.


3. Fólk – félagsleg sjálfbærni

Heimsmarkmiðin

17 markmið Sameinuðu þjóðanna og verkfæri til að innleiða þau í starfsemi.


Viðskipti og mannréttindi – Business & Human Rights Navigator

Stafræn fræðsla UNGC um áhrif starfsemi og virðiskeðja á mannréttindi, með áhættugreiningu eftir atvinnuvegum.


Atvinnulífið og fólk með skerta starfsgetu

Leiðir, samstarfsaðilar og tengiliðir til að styðja við atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu.


Raddir unga fólksins

Hagaðilagreining Festu á því hvað ungmenni 16–30 ára telja mikilvægt í sjálfbærni íslenskra fyrirtækja.


Fair trade vörur

Vottun sem staðfestir að vara sé unnin á sanngjarnan hátt og að starfsfólk fái sanngjörn laun.


4. Hagsæld – staðlar, upplýsingagjöf og stjórnarhættir

GRI – alþjóðlegir staðlar

Alþjóðlegir staðlar um sjálfbærniupplýsingagjöf, notaðir í yfir 100 löndum — með íslenskri þýðingu.


UN Global Compact

Samfélagssáttmáli fyrirtækja og Sameinuðu þjóðanna: tíu viðmið og árleg stöðuskýrsla.


PRI – Principles for Responsible Investment

Reglur um ábyrgar fjárfestingar, þróaðar af stofnanafjárfestum í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar.


UFS (ESG) leiðbeiningar kauphallar Nasdaq

Samnorrænar leiðbeiningar um birtingu sjálfbærniupplýsinga fyrir fjárfesta og hagaðila. [Vantar undirsíðu – tengja við nýja síðu]


Íslenskur staðall um samfélagsábyrgð (ÍST ISO 26000)

Leiðbeinandi staðall um meginreglur samfélagslegrar ábyrgðar — ekki vottunarstaðall.


Skylduskil á skýrslum til Landsbókasafns

Ársskýrslur falla undir lög um skylduskil; skilin fara fram í Rafhlöðunni, rafrænu varðveislusafni Landsbókasafns.


Hagkerfi hagaðila, staðlar og mælieiningar

56 samræmdir mælikvarðar frá World Economic Forum, flokkaðir í stjórnarhætti, jörð, fólk og hagsæld.